
14.2K
Downloads
11
Episodes
Dagur Gunnarsson skiptist á sögum við fólk... ein saga leiðir til næstu sögu.
Episodes

May 2, 2021
May 2, 2021
1 hr 2 min
Guðrún Helga Tómasdóttir segir frá afspyrnulélegum smekk sínum á körlum. Það komu margar skondnar sögur af samskiptum hennar við hitt kynið og Dagur segir frá Viagraneyslu sinni og hvernig það er að koma nakinn fram.

Apr 25, 2021
Apr 25, 2021
1 hr 11 min
Guðný Halldórsdóttir kallar ekki allt ömmu sína, hún hefur lagt gjörfa hönd á margar kvikmyndir og í þessum þætti skiptast þau Dagur á sögum sem tengjast kvikmyndabransanum, fiskvinnslu og fleira. Þau hafa bæði búið í Svíþjóð og London og hafa rekist á undarlegt fólk á flækingi sínum, forðast sprengjur Írska lýðveldishersins og fleira og fleira.

Apr 18, 2021
Apr 18, 2021
1 hr 30 min
Lóa Hjálmtýsdóttir er listakona, teiknari, rithöfundur og hljómsveitatýpa. Hún segir okkur tvær útgáfur af sömu sögunni af dauða kattar. Önnur er sönn en hin er lygi. Dagur segir margtuggna pylsusögu og ljóstrar upp um áður óleystan glæp í Kringlunni.

Apr 11, 2021
Apr 11, 2021
1 hr 12 min
Rósa María Hjörvar stundar doktorsnám í bókmenntafræðum við Háskóla Íslands, hún hefur dvalið helming ævinnar í Danmörku og á nokkrar góðar sögur frá þeim árum. Hún getur spilað keilubilljard með lokuð augun og kann óbrigðult ráð til að sjá hvort unglingapartý hafi átt sér stað. Dagur segir frá húsgagnaviðgerðum eftir partý og hvernig hann fékk titilinn Guðfaðirinn.

Apr 4, 2021
Apr 4, 2021
1 hr 8 min
Huld Óskarsdóttir hefur ólæknandi áhuga á tölfræði og leiklist. Hún er sálfræðimenntuð og starfar á auglýsingastofu og eftir að hafa heyrt hana skiptast á sögum við Dag Gunnarsson er ljóst að hún er ofurkvendi sem getur allt. Leigubílstjórar í Kaupmannahöfn lækka róminn og fyllast lotningu ef minnst er á Huld. Dagur segir tröllasögu úr leikhúsinu og stóra sælgætissvindlinu.

Mar 28, 2021
Mar 28, 2021
1 hr 6 min
Arndís Ásgeirsdóttir er tónlistarkennari, þáttagerðarkona og íhlaupaþulur á Rás 1. Arndís hefur alið manninn bæði í sveit og borg með tónlistarmenntun frá bæði Frakklandi og Tékklandi og kann tökin á að segja skemmtilegar sögur.

Mar 21, 2021
Mar 21, 2021
1 hr 1 min
Ása Marin er rithöfundur og heimshornaflakkari sem mætir hér til leiks með sprengfullan sagnasarp. Hún skiptist á sögum við Dag og flissar eins og enginn sé morgundagurinn.

Mar 14, 2021
Mar 14, 2021
1 hr 12 min

Mar 7, 2021
Mar 7, 2021
1 hr 1 min
Halldóra Geirharðsdóttir, leikari, leikstjóri, kvikmyndastjarna, trúður, kennari og stofnmeðlimur í hljómsveitinni Risaeðlunni er viðmælandi þáttarins. Hún er að senda frá sér plötu með hljómsveitinni Látún og í þættinum ræðir hún um árið sem hún hvarf í sértrúarsöfnuð og sú staðreynd hvað Dagur er laglaus og sjúkur í lakkrís ber einnig á góma.

Mar 7, 2021
Mar 7, 2021
1 hr 10 min
Kamilla Einarsdóttir er bókavörður og rithöfundur sem hefur sent frá sér skáldsöguna Kópavogskrónika – til dóttur minnar með ást og steiktum. Kamilla ræðir við Dag um örbylgjuofna, spindilkúlur, dömubindi, skilorðsfulltrúa og hugulsemi. Dagur segir sögu frá Benidorm.

Mar 4, 2021
Mar 4, 2021
13 min
Alveg Dagsatt er ný þáttaröð hjá Hljóðkirkjunni. Hér er smá kynning á því sem í vændum er.
